Jæja ég held að ég verði að skrifa aðeins um ferðina mína og
félaga minna í "Vinum Bjögga" til Tallin í Eistlandi.
Lagt var af stað frá Horsens klukkan 05:00 á mánudagsmorgun fullir
eftirvæntingar en líka smá kvíða þar sem að við vissum ekkert hvert
við vorum að fara eða hvað við vorum að fara út í. Flugið var
sem betur fer stutt og þægilegt. Við komuna til Tallinn
fundum við okkur leigubíl og reyndum að gera okkur skiljanlega
hvert við vorum að fara á hótelið, það hafðist nú á endanum.
Ekki leist okkur nú á blikuna þegar að við renndum upp að þessu
blessaða hóteli, húsið leit út eins og hús Addams fjölskyldunnar en
við ákváðum nú samt að gefa þessu séns.
Eftir að við vorum búnir að tékka okkur inn röltum við af stað í
bæinn en ákváðum nú samt að taka nokkrar myndir af kofanum, þar sem
að við stóðum í þessum óræktar garði við hótelið að taka myndir
reis allt í einu upp maður fúlskeggjaður og skítugur í einum
runnanum, við vorum þá búnir að hitta nágrannann.
Restinni af
deginum eyddum við svo í að skoða borgina og ná áttum. Um kvöldið
fórum við á einhvern pöbb sem að við fundum umsögn um í bæklingi
sem gítarpöbb en allt kom fyrir ekki það var línudans æfing á
staðnum og þar votum við nú ekki á heimavelli þar sem að
”Skagadansinn” er okkar sterka hlið. Það varð nú ekki mikið meira úr
þessu kvöldi enda langur dagur að baki.
Þriðjudagurinn var
tekinn snemma og farið á labbið í bænum, þetta er alveg
stórmerkileg og falleg borg, mæli eindregið með því að fara þangað.
Og svo um kvöldið var
farið út á lífið þá fundum við okkur bara hinn þokkalegasta
klúbb.
Restin af vikunni
var nú bara mjög svipuð þessum tveimur fyrstu dögum, mikið labbað
og skoðað og svo deginum slúttað með djammi og tilheyrandi
fíflalátum.
En sem sagt alveg
ótrúlega vel heppnuð ferð. Tallinn alveg frábær borg í alla staði,
hreinleg, mikið líf og hræódýrt.
Búinn að setja inn
myndir frá ferðinni og koma fleiri seinna.
Stjáni
out!